Úff góð steik !!!!!
Jæja nú er ég kominn til Cairo.
Efitr 12 tíma ferðalag frá Luxor kom ég til Alexandriu. Ég svaf í lestinni í efri kojunni með einhvern held ég þýskann 15 ára strák í kojunni fyrir neðan mig. Eina sem ég hafði áhiggjur af er að ef Egypst handverk væri ekkert sérlega gott væru dagar þessa drengs taldir og það síðasta sem hann mundi sjá væri kojan mín á koma ofaná hann. En jú það gerðist ekki og hann svaf vært og vissi ekki um tröllið á eftirhæðinni hehehe.
Well Alexandria skiptist í nokkra hluta og hlutarnir sem ég sá voru sæmilega ljóti og virkilega ljóti. Venjulegu hverfin voru hræðileg á að líta. Ekki malbik eða hellur á götunum og þó að það væri malbik var erfitt að keyra þarf sökum þess að þar eru holur og hriggir og svo framvegis.
Við fórum á nokkra alveg ekkert svo merkilega staði en það sem stóð uppúr var virki við höfnina. Mjög flott. Við fórum líka á bókasafnið og þetta er í fyrsta skiptið sem ég hef borgað mig inn á bókasafn. Allur heimurinn virðist hafa lagt til peninga til þess að þetta yrði til. Alveg virkilega flott bókasafn. Hótelið sem við vorum á var alveg geggjað flott. Eitt það flottasta sem ég hef verið á. Marmari óg stór herbergi er það sem ég man ;).
í gær komum við til Cairo.
Hótelið okkar heitir Marriot og er gömul höll. Alveg geggjað flott. Hér eru fullt af matsölustöðum og verslunum en verið er aðeins hærra.
Í dag fórum við í Mosku Muhamed Ali og Cairo safnið. Það var alveg geggjað að sjá safnið sem fannst í gröf Tutach Amon. Þetta voru ca 3500 hlutir en það flottasta er innsta kistan við mumiuna sem er ca 120 kg af solid gulli og svo dauðagríman sem er ca 12 kg af solid gulli. Þessir hlutir eru alveg geggjað flottir alveg það mesta. Allir aðrir hlutir á safninu voru svolítið prump þegar ég var búinn að sjá þetta.
Og nú ætla ég að segja ykkur frá steikinni minni.
hehehe úff ég fór núna um kl 10 út að borða hér á hótelinu og valdi mér Grillhús Jóa. Úff þegar ég kom inn var leðurbólstruðum hægindastólumm ýtt undir rassinn á mér. Ég pantaði minnstu steikina því jú klukkan er 10 og það er nú ekkert sérlega hollt að gúffa í sig mörgum kg af nautakjöti fyrir svefninn hehe. Til að gera þetta aðeins styttra var þetta besta steik sem ég hef fengið hér í Egyptalandi og þó víðar væri leitað. Þjónustan var betri en nokkurstaðar heima. Þeir eru virkilega komnir með þetta hér. Eitt besta steikhús sem ég hef farið á og nú ligg ég hér á meltunni og blogga hehe.
Á morgun er það svo Píramídarnir, ég sé í toppinn á þeim hér út um gluggan. Mig halkkar geggja mikið til að sja þá. Búinn að vera draumurinn síðan ég var líttill.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home