Jæja það hafðist að sjá Píramídana.
Jæja rússínan í pilsuendanum voru Píramídarnir. Þeir geima þetta þangað til síðast ég veit ekki afhverju . Hmm kanski af því að annað virkar frekar smátt í samanburði við þá og rúristarnir mundu ekki vakna fyrir aðra hluti eftir að hafa upplifað þá.
Þrír stærstu píramídarnir. Sá fyrsti frá vinstri og sá stærsli var byggður af Khufu konungi. Næstu tveir eru svo byggðir af sysni hanns og barnabarni.

Þett var alveg mjögnuð upplifun. Ég fór inn í næst stærsta píramídann. Það eru bara 150 sem fá að fara inn í stóra píramídann á dag þannig að við náðum ekki miðum. Bömmer en alveg í lagi.
Inni í píramídanum var ekkert, alveg ekki neitt bara málning eftir einhvern heilvítis gölt sem kom þarna inn rétt fyrir 1900 og fannst sniðugt að mála staðfestingu þess efnis í risastórum stöfum. Þokkalega vafasamur gutti. Annars var þetta mjög þröngt og mjög loftlaust samt gaman að hafa komið þarna inn.
Á morgun þarf ég að vakna kl 6 og taka flugvél til Hurghada og leggjast á ströndina hehe nice. Þar ætla ég að reyna að kafa og ná mér í smá brúnan eða ljósbleikann lit á húðina bara svona til þess að sanna það að ég hafi verið í heitulöndunum hehe

2 Comments:
Sæll gamli. Gaman að fá að fylgjast með ferðinni, vottar fyrir öfund hérna í firði ísa. Ertu ekki örugglega búinn að fjárfesta í handklæði á hausinn? Hvenar er aftur ETA á klakann? kv.Ö
Muna eftir sunblokkinu !!
aje
Post a Comment
<< Home