Nú er þetta búð ;-(

Hótelið mitt núna í lokin
Jæja nú er þetta búið. Eftir 3 tíma sest ég upp í flugvél á leið minni til köben. Þetta er orðið gott. Mig er farið að hlakka til að koma heim í kuldan þó að ég gæti nú alveg legið hérna fyrir í ca viku í viðbót og slappað af.Í Gær fór ég að kafa. Þurfti að vakna kl 8:30 og plan dagsins var að taka 2 kafanir eina fyrir hádegi og eina eftir hádegi. Við fórum út á skipi ca 10 km út á Rauðahafið að kóralrifi og hoppuðum þar útí. Sjórinn var æðislegur og alveg hrikalega tær. Þegar maður var kominn ofaní mætti allt gengið úr myndinni nemo til að heilsa uppá mann. Þvílíkir litir þetta er alveg ótrúlegt. Að horfa upp eftir rifinu var eins og að horfa á einhvern dýralífsþátt. Maður bara trúir þessu ekki. Ég sé ekki eftir þessu. Svo meðan maður var ekki að kafa flatmagaði maður bara í sólinni uppi á dekki. Heilvíti nice leið til að eiða deginum.
Dagurinn endaði svo á fínasta veitingastaðnum hér í þriggja rétta máltíð og góðu víni. Fínn endir á mjög svo góðu fríi.

2 Comments:
Það er tóm steypa að vera ekki alltaf í fríi !!! En svona er þetta líf, bara strit og vesen.
aje
Bara að tékka inn. Já, ég held að maður reyni nú að ferðast eitthvað à sumar. Bara ákveða hvort það verður Selfoss eða Egilsstaðir...
Post a Comment
<< Home